21.8.2007 | 22:39
Seven Minutes in Heaven
7 mín og 17 sek. Þessi tímasetning hefur verið mér afskaplega hugleikin undanfarna daga. Hef komist að því að á 7 mínutum getur maður komi ótrúlega miklu í verk. Það tekur mig til dæmis að jafnaði um sjö mínutur að fara í sturtu á morgnana ef ég er að flýta mér. Eins er ég c.a. 7 mínútur að keyra heim úr vinnunni ef ég fer eftir að mesta síðdeygis-traffíkin er liðin. Þá las ég það um dagin að samkvæmt nýlegri breskri rannsókn, stunda bretar kynlíf að jafnaði í 7 mínútur í senn (er þá allur forleikur, allt klapp og klór væntanlega undanskilið). Hver man svo ekki eftir hinu geysivinsæla unglingaspili Seven Minutes in Heaven sem hefur fylgt hverri kynslóðini á fætur annarri. Að vísu spilaði ég það aldrey sjálfur en sögurnar voru alltaf virkilega djúsí.
En ástæðan fyrir því að ég velti þessu fyrir mér núna er sú að á laugardaginn liðu einmit 7 mínútur og 17 sekontur frá því að ég kom í mark í 10 km hlaupi Glitnis og þangað til Viktor Elvar kom í mark, en hann hafði einmitt hlaupið sömu vegalengd. Það má ef til vill segja að þá hafi ég loksins upplifað mínar Seven minutes in heaven.
Siggi Valur
Síður
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Voru þetta Seven minutes in heven með Ingibjörgu eftir hlaupið?
Grelli (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 10:26
Það er akkúrat það sem ég óttast.
Það er einnig rétt að taka það fram að skv. flögutíma voru þetta rétt um 6 mínútur. Sigurður tróð sér náttúrlega fremst í hópinn á meðan ég beið eftir honum við Iðnó og þurfti svo að fara aftast í ráshópinn tæpri mínútu fyrir hlaup! Svo kallar maður hann vin sinn!
Hann þurft því ekki að sviga fram hjá 2400 manns allt hlaupið eins og ég þurfti. Í mesta lagi þurfti hann að taka svigið fram hjá 20-40 manns. Það munar klárlega um það, þó að Silli átti sig ekki á því!
Tryllti (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 09:55
Gaman að þið skulið vera komnir aftur - ekki laust við að maður væri farinn að sakna ykkar lítillega (legg þó áherslu á lítillega).
Óskar Örn Guðbrandsson, 24.8.2007 kl. 18:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.