Leita í fréttum mbl.is

Þannig lagað....

Kári mun að sjálfsögðu nýta glænýja Nike skó sína á æfingum og í leikjum T&V.  Þar sem hann hefur verið tekin inn í félagið eftir reynslusamning sem hann var á í haust.

Kári hefur leikið ágætlega með T&V á æfingum en á enn eftir að öðlast næga reynslu í leikjum liðsins til þess hægt sé að telja hann fullmótaðan leikmann T&V.

Brekkan.net óskar Kára góðs gengis með nýju liði.

Tryllti


mbl.is Kári Steinn leggur skóna á hilluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áramótakveðja

Það er alveg magnað hvað maður bindur alltaf miklar vonir við nýja árið. Um hver einustu áramót trúir maður því í nokkra daga að nýja árið verði svo miklu betra en þau sem á undan hafa liðið. Alltaf skal maður falla í þá gryfju að setja sig í “stellingar”; alltaf ætlar maður að taka sig á, bæta ráð sitt, ná áður fjarlægum markmiðum. En svo í lok hvers árs lítur maður til baka og sér að árið sem þá er að líða er lítið frábrugðið öðrum og allir þessir persónulegu sigrar eru jafn fjarlægir og um síðustu áramót.

Eftir á að hyggja eru því áramótin hjá okkur flestum lítið annað en dulbúinn áminning brostinna vona og glataðra tækifæra.

Gleðilegt ár

Siggi


Hálfvitana á Akureyri

var það sem sonur minn sagði ömmu sinni og afa að hann væri að fara að sjá þegar þau spurðu hvað hann væri að fara að gera um síðustu helgi.  Drengurinn áttaði sig ekkert á því af hverju amma hans og afi fóru að skellihlæja þegar hann hafði sagt þeim þetta.

Skýringin var eðlilega sú að hann var að fara að sjá skagamanninn Hallgrím Ólafsson og félaga hans hjá Leikfélagi Akureyrar í leikritinu Óvitar eftir sögu Guðrúnar Helgadóttur.  Drengurinn hló reyndar ekki nærri því jafn mikið af sýnigunni og amma hans og afi hlóu að honum en engu að síður skemmti hann sér konunglega og lifði sig inní leikritið.  Svo mikið lifði hann sig inn í leikritið að hann átti erfitt með að festa svefn síðar um kvöldið þar sem langafinn í leikritinu var sagður eiga lítið eftir og stráksi pældi mikið í þessu sem öðru.

Sýningin var annars í lang flesta staði virkilega góð og ríflega 5000 manna aðsókn segir meira en mörg orð og það sérstaklega hjá Leikfélagi Akureyrar þar sem leikhúsið rúmar nú ekki mjög marga á hverri sýningu.  Skagamaðurinn stóð sig að sjálfsögðu eins og hetja og var bara drullu góður í hlutverki Finns hins týnda.  Ótrúlega gaman að sjá Halla á sviði, ekki það maður ólst upp við að hann væri á sviðinu með kassagítarinn og/eða með hljómsveitum í hæfileikakeppni FVA og annarsstaðar.  Því var virkilega gaman að sjá hann í þessu "nýja" leikara hlutverki sínu á sviðinu og þó að kassagítarinn hafi ekki verið framaná stráksa þá var hann engu síðri en með hann.

Aðrir leikarar stóðu sig fanta vel líka, Gummundur eins og Finnur kallaði hann var flottur og náðu þeir vel saman vinirnir.  Ungu krakkarnir allir voru líka flott í hlutverkum sínum þó að einstaka veikburða raddir hafi ekki alveg heyrst af minni hálfu.  Var reyndar með í eyrnumu!

Eftir þessa upplifun þá hef ég ákveðið að fara á sýningu hjá LA strax eftir áramót en þá leikur Halli í farsanum Fló á skinni sem ku vera alveg mögnuð skemmtun.  100 ára gamalt leikrit í leikgerð Gísla Rúnars, fyrir þá sem hafa á annað borð gaman að farsa þá er þetta klárlega málið.  Skora á aðra brekkumeðlimi að fjölmenna með mér og minni spúsu þegar þar að kemur!

Gæti orðið um miðjan janúar, árshátíð Brekkunnar á Akureyri þetta árið!?  Hver veit!

Tryllti


Prakkarastrik á Skipaskaga

Þessi frétt vakti strax upp skemmtilegar minningar.

Síðastliðinn fimmtudag urðu nokkkrir nemendur tíunda bekkjar Brekkubæjarskóla á Akranesi uppvísir að því að spilla samlokum sem þeir seldu í brauðsölu innan skólans. Settu þeir laxerolíu á nokkrar samlokur og seldu þær. Nokkrir nemendur veiktust í kjölfarið. Skólayfirvöld fullvissa aðra nemendur og forráðamenn þeirra um að slíkt eigi ekki að geta endurtekið sig. Í tilkynningu frá skólayfirvöldum segir m.a: “Þegar hefur verið tekið á þessu máli hér í skólanum með fullum þunga. Við erum búin að komast fyrir rót vandans og höfum gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir að nokkuð þessu líkt geti nokkurn tíma hent aftur. Við höfum breytt öllu skipulagi á afgreiðslu í brauðsölunni, auk þess sem hún var þrifin í hólf og gólf.”

 

Þá segir einnig í tilkynningu skólayfirvalda að nemendur unglingadeildar sem hafa keypt af brauðsölunni fram að þessu geta verið þess fullvissir að fullkomlega óhætt verður að versla þar héðan í frá.

 

En greinilegt að prakkarastrikinn verða grófari með hverju ári.

Við vorum reyndar aldrei svo frægir að komast í blöðin.

Lifi Brekkubæjarskóli Grin

 


Þá kýs ég nú frekar göngin og Kjalarnesið.......

heldur en blessaða heiðina.  Skil ekki hvernig fólki dettur í hug að flytjast til Selfoss eða Hveragerðis þegar það getur valið að búa á Akranesi!

Það að borga 200 kall rúman fyrir ferðina er náttúrlega bara stór og góður djókur.  Er viss um að þessir sem fengu slink á hálsinn og skemmdu bílana sína í morgun hefðu glaðir vilja skipta á gjaldi í göngin!

Tryllti


mbl.is Varað við töfum á umferð vegna hálku og umferðaróhappa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær fer maður í átak og hvenær fer maður ekki í átak?

Sumir spila Golf, sumir drepa saklausa fugla, sumir hafa gaman að því að þeysast um á vélhjólum og einhverjir spila knattspyrnu.

Við Grétar höfum gaman að því að taka daginn snemma fara líkamsrækt, lifta lóðum og hamast á ýmsum tækjum og tólum. Við höfum ekki síður gaman að því að hitta fólkið í líkamsræktastöðini og fara yfir málefni líðandi stundar. Eins er það með öllu óviðjafnanlegt að slaka á í heitum potti eða fara í gufubað eftir erfiða æfingu.

Fyrst og fremst er þetta þó frábær leið til að byrja daginn; maður verður allur þróttmeiri og ákveðnari í því að takast á við lífið af bjartsýni.

Viktori er þó að sjálfsögðu frjálst að kalla þetta þeim nöfnum sem hann vill. Átak eða ekki átak, við Grétar höfum þó ekki setta þetta upp sem eitthvað tabú sem krefst athygli annarra en okkrar sjálfra. Við höfum ekki skilgreint tímamörk eða markmið, höfum ekki leitað ráðgjafar fagaðila eða óskað eftir athugasemdum, stuðningi né aðdáun nokkurs.

Við gerum þetta á okkar forsendum og árangurinn sömuleiðis verður alfarið metin út frá okkur sjálfum. Hver sem “niðurstaðan” kann að verða munu allavega alltaf sitja eftir góðar minningar. Það má þó vissulega ræða það hvort við leifum lesendum brekkunar að fylgjast með því sem er að gerast. Við munum vafalaust ræða það í pottinum í fyrramálið. En það verður þó ekki gert öðruvísi en á okkar forsendum.

Siggi


Uppljóstrun

Ég þykist vita að eftirfarandi upplýsingar liggja ekki á glámbekk og þeim er ekki ætlað að vera á milli tannana á fólki.  Einmitt þess vegna finst mér kjörið að koma þeim á framfæri!

Strákarnir eru byrjaðir í ræktinni.  Það er komið upp annað átak!  Eitthvað minna í sniðum þó en það sem átti sér stað á síðum brekkunnar fyrir nokkrum misserum.  Einungis 2 meðlimir brekkunnar taka þátt að þessu sinni en ekki fjórir eins og í fyrra skiptið.  Væntanlega vegna þess að þeir 2 þurfa lang mest á því að halda!

Hér með skora ég á þessar tvær feitabollur að leyfa okkur að fylgjast með í máli og myndum.

Tryllti -  sem þarf ekkert á því að halda að fara í Átak!


Af hverju ekki kvóti!?

Þetta eru vissulega jákvæðar fréttir, vonandi að maður nái nú þeim 15 kvikindum sem maður þarf á að halda svo jólin verði í föstum skorðum.

Það sem vekur athygli mína er að hverju er ekki hægt að setja kvóta á rjúpuna.  Þannig að hver veiðimaður megi ekki skjóta meira en t.d. 20 rjúpur.  Það er vitað mál að það eru magnveiðimenn í þessu sem selja rjúpurnar og eru klárlega ekki að virða ábendingar um hóflega veiði.  Það verður að koma í veg fyrir að þessir menn vaði uppi og gangi að stofninum dauðum!

 

Tryllti


mbl.is Áfram sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seven Minutes in Heaven

7 mín og 17 sek. Þessi tímasetning hefur verið mér afskaplega hugleikin undanfarna daga. Hef komist að því að á 7 mínutum getur maður komi ótrúlega miklu í verk. Það tekur mig til dæmis að jafnaði um sjö mínutur að fara í sturtu á morgnana ef ég er að flýta mér. Eins er ég c.a. 7 mínútur að keyra heim úr vinnunni ef ég fer eftir að mesta síðdeygis-traffíkin er liðin. Þá las ég það um dagin að samkvæmt nýlegri breskri rannsókn, stunda bretar kynlíf að jafnaði í 7 mínútur í senn (er þá allur forleikur, allt klapp og klór væntanlega undanskilið). Hver man svo ekki eftir hinu geysivinsæla unglingaspili “Seven Minutes in Heaven” sem hefur fylgt hverri kynslóðini á fætur annarri. Að vísu spilaði ég það aldrey sjálfur en sögurnar voru alltaf virkilega djúsí.

En ástæðan fyrir því að ég velti þessu fyrir mér núna er sú að á laugardaginn liðu einmit 7 mínútur og 17 sekontur frá því að ég kom í mark í 10 km hlaupi Glitnis og þangað til Viktor Elvar kom í mark, en hann hafði einmitt hlaupið sömu vegalengd. Það má ef til vill segja að þá hafi ég loksins upplifað mínar “Seven minutes in heaven”.

Siggi Valur

 

 


Næsta síða »

www.brekkan.net

Samfélag brekkumeðlima www.brekkan.net!

Síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband